Hugsun til framtíðar
Leiðtogar standa ekki í stað. R&Þ verkfræðingar Trico eru stöðugt að þróa næstu kynslóðir lausna til að gefa viðskiptavinum okkar samkeppnisyfirburði, á fagurfræðilega, jafnt sem hagnýta sviðinu. Hugsun okkar beinist að því að nota ný efni og -tækni til að veita hönnuðum ykkar nýja aðlaðandi valkosti til að gera notendur framleiðsluvara ykkar ánægða.
Styrkur um allan heim, á réttum stöðum
Eins og búast má við af hnattrænum leiðtoga í tækni er Trico með bestu framleiðsluaðstöðu í sínum flokki í fimm heimsálfum. Eftir myndarlega fjárfestingaráætlun er Pontypool háskólasvæðið í Suður-Wales helsta hugbúnaðarhönnunarmiðstöð okkar fyrir UB-rekstur í Evrópu, þar sem við getum samræmt færni í framleiðslu og afhendingargetu til að þjóna viðskiptavinum okkar í nýstækkuðu Evrópusambandi og lengra.
Sett af stað með yfirburðum
Okkar einstæði vöruþróunar- og gangsetningarferill býður upp á einarðan og samhæfðan Trico-hóp til að vinna náið með þínum eigin vöruhönnunarhópi. Þetta tryggir óaðfinnanlega samþættingu hvers konar þurrkukerfis inn í gangsetningaráætlun þína.
Að gera viðskiptavini þína ánægða
Þeir hafa kannski ekki hátt um það, en ökumenn taka eftir og meta framúrskarandi frammistöðu þurrkukerfa. Þess vegna heimilum við reglubundið kannanir á ánægju viðskiptavina og við förum eftir niðurstöðunum, með ströngu verklagi til að greina svörunina og gera viðeigandi breytingar á kerfinu sem er í stöðugum endurbótum hjá okkar.
Heildargæði
Á svo mikilvægu öryggissviði eru málamiðlanir einfaldlega ekki valkostur. Alveg eins og við vinnum sem framlenging á vöruþróunarhópum þínum, vinnum við samkvæmt sömu fyrirmyndarframleiðslustöðlum og þjónustu og vörumerki þitt sækist eftir. Til viðbótar við að vera viðurkenndir af nánast öllum helstu alþjóðlegu gæðastöðlum, erum við með eitt lægsta bilanahlutfall í greininni, framúrskarandi frammistöðu varðandi ábyrgð og fyrsta flokks einkunnagjöf sem birgjar frá mörgum kröfuhörðustu framleiðendum heims.
Veldu tungumál